Sumarhelgistund og gæludýrablessun kl. 11:00 þar sem gæludýraeigendur eru sérstaklega boðnir velkomnir ásamt dýrum sínum. Dýrin eru blessuð og beðið fyrir þeim og samfylgd dýra og manna þökkuð. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju  syngja. Organisti er Krisztina Kalló Szklenár.

Emma Eyþórsdóttir og Jón Heiðar Þorkelsson syngja og leika á hljóðfæri.

Molasopi og samfélag eftir guðsþjónustu.