Taizé messa kl. 11:00. Þá eru sungnir rólegir söngvar sem eru í raun Biblíuvers og áhersla á einfaldleika og kyrrð. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Krisztinu Kalló organista og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Aðalheiðar og Önnu Siggu.