abcGuðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Guðsþjónusta með þátttöku fermingarbarna. Prestar  sr. Þór Hauksson og sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir ásamt Ingunni Björk Jónsdóttur djákna og Markúsi Bjarnasyni. Kirkjukór Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár, organista kirkjunnar. Foreldrar fermingarbarna vorsins 2017 eru sérstaklega boðuð til guðsþjónustunnar.Foreldrafundur að lokinni guðsþjónustu. Kirkjukór Árbæjarkirkju með kökubasar.
Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjón Önnu Sigríðar Helgadóttur og Aðaheiðar Þorsteinsdóttur. Söngur, brúðuleikrit, Nebba nú og mikil gleði. Kaffi, djús og kex í lokin.