PetrinaNæsta sunnudag 4. október, kl:11 verður innsetningarmessa í Árbæjarkirkju.   sr. Gísli Jónasson prófastur Reykjavíkur prófastsdæmis eystra setur Petrínu Mjöll Jóhannesdóttir formlega í embætti prests við söfnuðinn.  Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari.  Petrína Mjöll prédikar.    Það  verður mikið um dýrðir og allir velkomnir í messuna og í kaffi á eftir í boði sóknarnefndar.   Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.

Léttmessa um kvöldið kl.20.00.  Jón Jónsson sér um tónlistina.  Ungmenni úr fermingar og æskulýðsstarfinu sjá um lestra og prédikun.